Úthlutunarkröfur

Góðan daginn,

Mig langaði að spyrja út í hvort það séu einhverjar kröfur sem leigutaki þarf að mæta til að fá úthlutað íbúð eða er ákvörðunin tekin í handahófi? Ég og unnusti minn erum búin að sækja um nokkrar mismunandi íbúðir hjá ykkur og höfum aldrei fengið úthlutun. Við erum bæði með hreina sakaskrá og lánhæfismatið okkar er í C1 af því við höfum aldrei verið í skuld áður. Þurfum við betra lánhæfismat til að koma til greina?

Takk fyrir.
Sunna Líf

Comments

  • Sæl Sunna,

    Takk fyrir spurninguna!
    Þeir sem skila inn hreinu sakavottorði og lánshæfismati koma allir til greina þegar eign er úthlutað. Farið er yfir allar umsóknir, og lánshæfismat er skoðað sérstaklega. Svo er valið af handahófi.

    Kveðja,

    Áslaug

Add your comment or create a new post

Nafnið þitt og spurningin er sýnilegt öllum. Netfang þitt verður aldrei sýnilegt öðrum.